Námskeið
Námskeið & fræðsla
Hjá Birtu er boðið upp á fjölbreytta fræðslu, námskeið og hreyfingu. Á morgnana, milli kl. 9-12, fer fram grunnstarf Birtu sem allir mæta í. Eftir hádegi eru í boði lokaðir hópar og námskeið sem þátttakendur velja sér (athugið að stundataflan er breytileg yfir árið).
Í grunnstarfi Birtu er boðið upp á fræðslu um bætta andlega líðan, lífsstílstengda fræðslu, eflingu í starf, sjálfseflingu, hópfundi o.fl.
Dæmi um lokaða hópa/námskeið eru:
PEERS félagsfærninámskeið, Björg bjargráð í tilfinningastjórnun, kvíðahópar, félagskvíðanámskeið, karlahópar, konuhópar, skapandi starf, samkenndarhópur, meðferðarhópar þar sem áhersla er á áfallavinnu og samkennd, hópmarkþjálfunarhópar, næringarstuðningshópur, eldhúshópur, handavinnuhópur og D&D hópur.
Hjá Birtu býðst þátttakendum að stunda fjölbreytta hreyfingu. Íþrótta- og heilsufræðingur er með þjálfun í tækjasal og teygjur og rúllur tvisvar sinnum í viku í World Class. Boðið er upp á einn til tvo yoga tíma í viku, þar á meðal er annar tíminn yoga nídra. Einnig er í boði vatnsleikfimi. Yfir sumartímann er áhersla í hreyfingu á útivist og göngur.
560-2055
birta@birtastarfs.is

bættu færni þína til að takast á við hindranir
Námskeið 2025
Hér má sjá yfirlit yfir námskeið og lokaða hópa sem eru í boði á vorönn 2025, bæði hjá Birtu og Fræðslunetinu.
Til að fá nánari upplýsingar eða til að skrá sig þarf að ræða við ráðgjafa.
Skráðu þig
Námskeið og lokaðir hópar
01
Björg – bjargráð í tilfinningastjórnun
Bjargráðakerfið Björg var þróað af Dr. Julie Brown og byggist á aðferðafræði díalektískrar atferlismeðferðar (DAM).
Með aðferðum DAM er einstaklingum kennt að staðfesta og samþykkja hverjir þeir eru, en á sama tíma að aðstoða og leiðbeina þeim að gera hjálpsamlegar breytingar sem stuðla að stöðugra tilfinningalífi. Núvitund er mikilvægur hluti af DAM. Áhersla er á að draga úr hvatvísi, ná stöðugleika í samböndum við sjálfan sig og aðra og að auka við sjálfsvirðingu. Á námskeiðinu eru kennd 9 bjargráð og kerfistæki (tilfinningamælir, gerðir bjargráða og uppskrift að bjargráðum).
Þátttakendur fá veglega handbók með verkefnum og lesefni.
- Þriðjudaga 13-15
- 11. mars - 3. júní
- Ráðgjafar Birtu
- 12 skipti
02
Meðferðargrúbba hjá félagsráðgjafa
Áhersla á að styðja við þær breytingar sem einstaklingurinn er að fara í gegnum hjá Birtu Starfsendurhæfingu með lausnamiðaðri og valdeflandi nálgun. Unnið er að því að skapa hópdýnamík þar sem traust, samkennd og þroski skapar innihald og ferli hópsins þar sem samverkun leiðbeinanda og þátttakenda þjónar valdeflandi.
Við stefnum að því að skapa andrúmsloft samkenndar og tilfinningalæsis.
- Kl: 13-15
- Ekki kominn dags.
- Berglind félagsráðgjafi
- 6 skipti
- Fyrsta skrefið, Austurvegur 10
03
Samkenndarhópur
Markmið námskeiðsins:
Núvitund og samkennd í eigin garð gerir okkur kleift að mæta erfiðum tímabilum í lífinu með sjálfsmildi, umhyggju og skilning. Samkennd og sjálfsmildi í eigin garð er falleg og hugrökk leið til sjálfsvinnu. Hún styður okkur í að bregðast við þeim erfiðleikum sem við ómeðvitað sköpum okkur sjálf, t.d. með neikvæðri innri gagnrýni, með því að einangra okkur eða með því að festast í óhjálplegum aðferðum.
Núvitund er fyrsta skrefið í vegferð okkar að öðlast samkennd – og felst í að opna sig fyrir erfiðri reynslu með hlýju og vakandi athygli (hugsunum, tilfinningum og því sem við finnum fyrir í líkamanum). Síðan kemur samkennd í eigin garð – að vera meðvituð um að færa okkur góðvild og hlýju.
Margar rannsóknir sýna fram á að samkennd í eigin garð hefur sterk tengsl við andlegt jafnvægi, auðveldar að takast á við áskoranir lífsins, dregur úr depurð og kvíða, eflir heilbrigðar lífsvenjur og styrkir tengsl við aðra. Þessi aðferð hjálpar okkur að viðurkenna og gangast við okkur sjálfum eins og við erum, hvetja okkur áfram með vinsemd, fyrirgefa okkur þegar þörf er á, tengjast öðrum af heilum hug og leyfa okkur að vera við sjálf.
- Kl:
- Ekki komin dags
- Thelma Lind Guðmundsdóttir
- 6 skipti
Skráðu þig
Virkniúrræði á vorönn 2025
01
Lífsstíll og verkjastjórnun
Námskeiðið byggir á líkamsmiðaðri og sálrænni nálgun á verkjum. Með aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) og núvitundar verða kynnt og bjargráð sem hjálpa til við að takast á við verki í daglegu lífi og stuðla að heilbrigðum lífsstíl. Markmið námskeiðsins er að hjálpa þátttakendum að: öðlast betri skilning og stjórn á verkjum, draga úr ákefð og tíðni verkja, draga úr áhrifum verkja og veikinda á líf þátttakenda, takast á við kveikjur þannig að einstaklingar upplifi færri bakslög og aukna stjórn í daglegu lífi og að auka lífsgæði.
- Þriðjudaga 13-15
- 25. febrúar - 1. apríl
- Brynja Guðmundsdóttir sálfræðingur og Kristín Júlía Hannesdóttir sjúkraþjálfari
02
Augnablikið – núvitundarnámskeið
Núvitund í daglegu lífi. Hvað er núvitund og hentar hún mér? Námskeið um núvitund og lífeðlisfræðileg áhrif þess að iðka núvitund. Þátttakendur fá tækifæri til að kynnast þeim leiðum sem hægt er að fara í iðkun núvitundar. Rannsóknir sýna að núvitund gagnast vel til að takast á við t.a.m. tilfinningar, streitu, svefn og verki. Einnig að iðkun á núvitund getur gefið fólki betra innsæi í tilfinningar sínar, betri athygli, minni og einbeitingu.
Tími: 5. til 14. maí, mánudaga og miðvikudaga kl. 14:00-16:00
- Kl: 14.00-16.00
- 5.-14. maí
- Karen Guðmundsdóttir, sálfræðingur
03
Ham og núvitund - hugræn atferlismeðferð
Námskeið byggt á hugrænni atferlismeðferð til að takast á við almenna líðan. Þátttakendur fá fræðslu (HAM) sem gengur út á að læra að þekkja tengsl hugsana, tilfinninga og hegðunar. Farið verður í undirstöðuatriði núvitundar sem leið til að takast á við tilfinningar og streitu. Markmiðið er að þátttakendur öðlist grunnfærni í að beita þeim aðferðum sem kenndar verða til að hafa áhrif á eigin líðan. Þátttakendur vinna heimaverkefni á milli skipta.
Tími: 19. mars – 16. apríl miðvikudaga kl. 13:00-15:00
- Kl:
- 19. mars - 16. apríl
- Karen Guðmundsdóttir, sálfræðingur
04
Raunfærnimat í almennri starfshæfni
Almenn starfshæfni er sú hæfni sem einstaklingur þarf að búa yfir eða tileinka sér til þess að taka á virkan þátt þátt í samfélaginu, vera á vinnumarkaði og þróast í starfi. Hún er mikilvæg í öllum störfum og hana má flytja í annað samhengi og milli mismunandi starfa og starfsgreina. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur skilgreint 11 hæfniþætti sem saman mynda almenna starfshæfni á íslenskum vinnumarkaði (aðlögunarhæfni, ábyrg nýting, árangursrík samskipti, jafnréttisvitund, mat og lausnir, upplýsingatækni, samvinna, skipulagshæfni, starfsþróun, upplýsingalæsi og vinnusiðferði). Hæfniþættirnir eru þrepaskiptir í samræmi við hæfniramma um íslenska menntun.
Raunfærnimatið hentar fólki sem er á krossgötum, er leitandi eða er að velta fyrir sér nýju starfi. Einnig fólki í starfsendurhæfingu sem t.d. hefur orðið fyrir kulnun. Ferlið getur reynst mjög eflandi þar sem fólk áttar sig á eigin styrkleikum, sækir jafnvel um störf sem það treysti sér ekki til áður, fær vinnu eða hefur nám.
Ferlið: Skimunarviðtal hjá náms- og starfsráðgjafa, hópavinna í 4-5 skipti, matssamtal, niðurstöðuviðtal hjá náms- og starfsráðgjafa.
Næsti hópur verður í mars/apríl 2025
- Kl: 10.00-12.00
- Mars-apríl
- Náms- og starfsráðgjafar
05
Stafræn hæfni og snjalltækjanotkun
Markhópurinn er fólk sem hefur þörf fyrir að læra á snjalltæki, spjaldtölvur eða snjallsíma. Námskeiðin fela í sér kennslu í notkun rafrænna skilríkja, heimabanka, netverslun og fræðslu vegna samfélagsmiðla og efnisveitna. Þá verður farið yfir notkun á tölvupósti og önnur rafræn samskipti m.a. í tölvu. Bæði er lögð áhersla á hagnýtt gildi sem og skemmtanagildi tækjanna.
Tími: 18. feb. – 4. mars, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 14:00 -16:00 – staðnám
- Kl: 14-16
- 18 feb
- Bjarni H. Ásbjörnsson
06
Meiri þekking, minni streita
Námskeið fellur niður.
Á námskeiðinu er farið yfir áhrif streitu á andlega og líkamlega líðan. Farið verður yfir ýmis verkfæri til að ná betri stjórn á neikvæðum áreitum í lífinu. Farið verður sérstaklega yfir samskipti og hvernig setja eigi mörk í samskiptum og leysa ágreining. Markmiðið með námskeiðinu er að auka skilning á neikvæðum áhrifum streitu og bæta við þekkingu þátttakenda um hvernig hægt er að stjórna streitunni með heilsusamlegum venjum og bættum lífstíl. Lögð er áhersla á markmiðssetningu, bætt samskipti, hvernig setja eigi mörk og þannig minnka streitu og ná meiri stjórn á aðstæðum í lífi sínu. Námskeiðið skiptist í fræðslu, umræður og verkefnavinnu.
- Þriðjudaga kl: 13-15
- 26. sept.- 24. okt
- ÍB
07
Snjalltækjanotkun
Markhópurinn er fólk eldra en 55 ára og/eða sem hefur þörf fyrir að læra á snjalltæki, spjaldtölvu eða snjallsíma. Námskeiðin fela í sér kennslu í notkun rafrænna skilríkja, heimabanka, netverslun og fræðslu vegna samfélagsmiðla og efnisveitna. Þá verður farið yfir notkun á tölvupósti og önnur rafræn samskipti.
Bæði er lögð áhersla á hagnýtt gildi sem og skemmtanagildi tækjanna.
- miðvikudaga og fimmtudaga kl. 10-12
- 22. – 30. nóvember
- Bjarni H. Ásbjörnsson
08
Íslenskunámskeið
Eru haldin á: Selfossi, Höfn, Hvolsvelli, Hellu, Vík, Kirkjubæjarklaustri, Reykholti, Flúðum og Þorlákshöfn Sjá nánar á fraedslunet.is
09
Önnur úrræði
Náms- og starfsráðgjöf
Námsbrautir FA
Menntastoðir
Félagsliðagátt
Leikskólaliðabrú
Stuðningsfulltrúabrú
Stakir áfangar á þessum námsleiðum
Raunfærnimat s.s. sjúkraliðar, vinnumarkaðshæfni, þjónustubrautir (félagsliði, leikskólaliði og stuðningsfulltrúi) og matartækni