Tilvísanir vegna haustannar
Tekið er á móti nýjum tilvísunum og umsóknum vegna haustannar fram til 15. ágúst. Nýr hópur í starfsendurhæfingu mun byrja 3. september.
Tekið er á móti nýjum tilvísunum og umsóknum vegna haustannar fram til 15. ágúst. Nýr hópur í starfsendurhæfingu mun byrja 3. september.
Sumarfrí verður hjá Birtu frá og með 18. júní til og með 7. ágúst.
Starfið byrjar aftur í kringum 20. ágúst. Þátttakendur fá sent bréf um hvenær og hvar á að mæta.
Fyrir fagaðila vegna nýrra tilvísana:
Hjá Birtu verða laus um 15 pláss fyrir nýja þátttakendur í haust. Hægt er að ná sambandi við ráðgjafa í gegnum netfangið birta@birtastarfs.is. Tilvísanir óskast sendar bréfleiðis á Birta starfsendurhæfing, v/Bankaveg, 800 Selfossi eða í gegnum tölvupóst á birta@birtastarfs.is.Haft verður samband við viðkomandi í lok júlí / byrjun ágúst og þeir boðaðir í viðtöl.
Stundatöflur fyrir næstu fjórar vikurnar hafa nú verið settar á heimasíðuna.
14. maí – 15. júní verður sumarönn þar sem áhersla verður lögð á útiveru, t.d. hreyfingu, útieldun og fleira. Ósk kom frá þátttakendum um námskeið í framsögn og tjáningu og er verið að vinna í því.
Eldhúshópur í umsjón Írisar byrjar n.k. mánudag 23. apríl og verður hann í Smiðjunni.
Kveðja, Sandra, Beta og Svala.
Heilsuefling hjá Ragnhildi fellur niður í dag vegna jarðarfarar. HAM námskeiðið verður kl. 13 í staðin, í Sandvíkurskóla .
Nú er mars stundataflan komin á vefinn.
Helstu fréttir í mars:
Níu þátttakendur hjá Birtu eru nú í opnu smiðjunni hjá Fræðsluneti Suðurlands í samvinnu við Stúdíó Sýrland. Þau eru frá kl. 9-15 og finnst æðislega gaman, okkur finnst ekki síður skemmtilegt að fylgjast með þeim en námskeiðið er kennt í Sandvíkurskóla.
Námskeið sem eru framundan: Áfram námskeið, HAM námskeið, sjálfsstyrkingarnámskeið, fjármálanámskeið- og eða ráðgjöf.
Nú er síðasta vika fyrstu lotunnar á vorönn 2012 að klárast.
Þemað í fyrstu lotunni var jákvæður janúar og voru þátttakendur meðal annars með vinnustofu um hamingjuna og jákvæða sálfræði. Þá hafa verið hópfundir, námskeiðið Efling í starfi fór af stað, og fyrirlestrar um andlega og líkamlega líðan. Nokkrir þátttakendur fóru á byrjendanámskeið í silfursmíði á vegum Fræðslunets Suðurlands og líkaði mjög vel. Þá hafa þátttakendur verið duglegir í hópþjálfun í ræktinni og þeir allra hörðustu hafa mætt í gönguhóp.
Fjörugir föstudagar eru að hefjast hjá okkur föstudaginn 3. febrúar en á fjörugum föstudögum fáum við til okkar gestakennara sem kynna fyrir okkur fjölbreytta heilsurækt. Næst komandi föstudag kemur Kristjana Árnadóttir og kynnir fyrir okkur yoga. Tíminn verður í Sportstöðinni kl. 11.
Í næstu viku mæta allir þátttakendur í viðtal hjá Söndru eða Betu og hreyfingin verður á sínum stað. 13. febrúar hefst síðan lota númer tvö hjá Birtu. Drög að stundatöflu eru komin á heimasíðuna en endanleg tafla verður birt í næstu viku. Henni verður dreift í einstaklingsviðtölum.
Birta starfsendurhæfing flytur starfsemi sína í Sandvíkurskóla v/Bankaveg í dag 19. janúar 2012.
Skrifstofan opnar á nýjum stað föstudaginn 20. janúar. Röskun á starfinu ætti ekki að verða mikil vegna þessa.
Hlökkum til að sjá ykkur á nýjum stað!
Kveðja, Sandra, Beta og Svala.
Vorönn 2012
Vorönn Birtu hófst með hópfundi skólahóps þann 5. janúar og starfshóps þann 6. janúar.
Þó nokkrar breytingar hafa verið gerðar á starfi Birtu á vorönn frá því sem verið hefur.
Helsta nýjungin í starfinu er sú að vorönninni er skipt niður í fimm lotur sem eru í þrjár til fjórar vikur. Tilgangurinn með því er að auðvelda þátttakendum að setja sér markmið og halda út endurhæfingartímabilið. Á milli tímabila er gert vikuhlé á námskeiðum og fyrirlestrum og þátttakendur fara í viðtal til ráðgjafa þar sem farið er yfir tímabilið og sett markmið fyrir nýtt tímabil.
Jákvæður janúar!
Í janúar er þemað jákvæður janúar. Á mánudögum er námskeiðið jákvæður janúar, vinnustofa um hamingjuna og jákvæða sálfræði. Á þriðjudögum er hópfundur og námskeiðið efling í starfi, á miðvikudögum verða fyrirlestrar tengdir líkamlegri og andlegri heilsu. Þjálfun í tækjasal verður á mánudögum og þriðjudögum og ganga á miðvikudögum. Síðar á önninni byrja þátttakendur í starfsþjálfun og eru fimmtudagar hugsaðir í það.
Á döfinni:
Sjálfsstyrkingarnámskeið í febrúar.
HAM námskeið í janúar/febrúar.
Fjörugir föstudagar (tilbreyting í líkamsrækt).
Glerlistarnámskeið hefjast aftur í febrúar.
Námskeið hjá Fræðsluneti Suðurlands sem þátttakendur eiga kost á að sækja:
Nám og þjálfun – undirbúningur fyrir frekara nám.
Smiðjan – í samvinnu við Stúdíó Sýrland.
Skrifstofuskólinn.
Skapandi starf:
Silfursmíði.
Stafrænar ljósmyndir.
Frekari upplýsingar um námskeið Fræðslunetsins er að finna á heimasíðu þeirra: www.fraedslunet.is
Hauststarf Birtu hefst 5. september samkvæmt stundatöflu (sjá hér til hliðar)
VIð byrjum mánudaginn 5. september, kl. 13.00-15.30. Við verðum í stofu 6 í Iðu við Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Á mánudag og þriðjudag verðum við með kynningu á stundatöflunni, starfi Birtu og svo ætlum við að kynnast öll aðeins betur 🙂
Á miðvikudaginn byrjum við í heilsueflingu – fræðsluhluta, á fimmudaginn byrjum við á SMS sjálfsstyrkingarnámskeiði og á föstudaginn byrjar Úr frestun í framkvæmd námskeið.
Það verður því nóg um að vera fyrstu vikuna í Birtu 🙂
Munið að mæta tímanlega!
Hlökkum til að sjá ykkur!
Sandra og Beta
Birta verður í sumarfríi frá og með 20.júní og fram í byrjun ágúst. Þátttakendur á haustönn Birtu fá upplýsingar um hvenær starfið hefst á ný þegar nær dregur.